Executive MBA nám

Executive MBA-námið er hagnýtt og krefjandi meistaranám á sviði viðskipta þar sem nemendur virkja kraftinn til þess að takast á við nýjar áskoranir.

Executive MBA-námið er leiðtoganám sem eflir þekkingu, persónulega færni og frumkvæði. Í náminu er forystuhlutverkið greint út frá mörgum sjónarhornum, einkum með tilliti til þess hvernig leiðtogar geta náð árangri í rekstri og samkeppnisforskoti með áherslu á sjálfbærni og stafræna þróun.

Executive MBA-námið veitir nýjar forsendur til starfsframa og er í sterkum tengslum við íslenskt viðskiptalíf.

Image
Útskrift MBA náms við HÍ 2020

Samstarf við IESE

Háskóli Íslands er í öflugu samstarfi við IESE Business School of Navarra í Barcelona, sem er í sjötta sæti yfir þá skóla sem skara fram úr almennt á heimsvísu í Executive MBA-námi samkvæmt mati Financial Times (2023)

Með þessu samstarfi fáum við alþjóðlegan blæ yfir námið og nemendur fá tækifæri að sitja krefjandi og spennandi námskeið í hvorum samstarfsskóla á námstímanum.   Samstarfið hefur mikið faglegt gildi fyrir námið í heild og er hluti af alþjóðlegri vottun námsins (AMBA).

Image
MBA nemendur Háskóla Íslands í kennslustund í IESE

Umsagnir nemenda

Aukin færni

95%

velja Executive MBA-nám til að auka færni og þróa sig í starfi.

Kennt á íslensku

71%

segir að kennsla á íslensku skipti máli þar sem umræður verða dýpri.

Launahækkun

71%

hefur fengið launahækkun eftir að hafa lokið námi.

Stöðuhækkun

67%

hafa skipt um starf eða fengið stöðuhækkun eftir nám.