Skipulag náms
Skipulag námsins miðast við að nemendur geti sinnt námi sínu meðfram starfi. Kennsla fer að öllu jöfnu fram aðra hverja viku á föstudögum og laugardögum kl. 9–17. Námið hefst í ágúst með undirbúningsdegi og síðan taka við níu námskeið á fyrra námsárinu og sjö á því seinna, auk lokaverkefnis.
Undirbúningsdagur
Executive MBA-námið hefst með undirbúningsdegi í ágúst, hann er haldinn daginn áður en fyrsta kennsluhelgin hefst.
Á undirbúningsdeginum gefst tækifæri til að kynnast því sem í vændum er og nánari upplýsingar um námið verða veittar. Eftir hádegi verður undirbúningsnámskeið í reikningshaldi sem er mjög góður grunnur fyrir alla, óháð bakgrunni.
Nemendur kynnast stig af stigi því sem fram undan er og fá tækifæri til að takast á við ólík verkefni í tengslum við námið.
Lykilstef námsins vísa ekki síst til virks samspils kennara og nemenda þar sem þekking kennara og reynsla nemenda mætast og móta nýja sýn.
![MBA nemendur í tíma](/sites/test7.hi.is/files/styles/squared_small/public/images/2020-03/kri_mba_190807_002_0.jpg?h=09d7b810&itok=dn-cC3sX 479w, /sites/test7.hi.is/files/styles/squared_medium/public/images/2020-03/kri_mba_190807_002_0.jpg?h=09d7b810&itok=_EbxNL70 480w, /sites/test7.hi.is/files/styles/squared_large/public/images/2020-03/kri_mba_190807_002_0.jpg?h=09d7b810&itok=Wk8SPxuB 768w)
Kennt á íslensku
Að jafnaði er kennt á íslensku, fyrir utan námskeið sem kennd eru í Yale og IESE og námskeið þar sem erlendir gestakennarar koma að kennslu.
Námið byggir á þátttöku nemenda, þar sem gagnrýnar umræður eiga sér stað og farið er djúpt í ólík málefni og námsgreinar.
Kennslugreinar í Executive MBA-námi má betur sjá hér fyrir neðan.
„Að kenna á íslensku gerir námið, samskiptin og samtalið svo miklu gagnlegra.“ Skúli Sigurður Ólafsson – MBA 2021
![MBA-nemendur í tíma](/sites/test7.hi.is/files/styles/squared_small/public/images/2020-03/mba_islenska.jpg?h=e5aec6c8&itok=YvNfhv6W 479w, /sites/test7.hi.is/files/styles/squared_medium/public/images/2020-03/mba_islenska.jpg?h=e5aec6c8&itok=vcXPR3Ke 480w, /sites/test7.hi.is/files/styles/squared_large/public/images/2020-03/mba_islenska.jpg?h=e5aec6c8&itok=z0UaA7n2 768w)
Lokaverkefni
Í lok Executive MBA-námsins vinna nemendur hagnýtt lokaverkefni þar sem þeim gefst tækifæri til að kafa dýpra inn á sitt áhugasvið undir handleiðslu leiðbeinenda sem hafa sérþekkingu á viðkomandi sviði.
Vinna við lokaverkefni hefst strax við upphaf síðasta misseris námsins og vinna nemendur að verkefninu út misserið.
Í lokaverkefnum gefst nemendum tækifæri til þess að nýta þekkingu sína úr öðrum námskeiðum og ljúka náminu með því að vinna að verkefni í tengslum við sitt áhugasvið.
![MBA-útskriftarnemar með lokaverkefni](/sites/test7.hi.is/files/styles/squared_small/public/images/2020-03/lokaverkefni.jpg?h=c01525f6&itok=lqdm_ZQY 479w, /sites/test7.hi.is/files/styles/squared_medium/public/images/2020-03/lokaverkefni.jpg?h=c01525f6&itok=p8JUgRj2 480w, /sites/test7.hi.is/files/styles/squared_large/public/images/2020-03/lokaverkefni.jpg?h=c01525f6&itok=XEHFk3pD 768w)
Skipulag
- Executive MBA-námið er tveggja ára nám sem skiptist niður í fjögur misseri
- Að jafnaði eru kennd fjögur námskeið á hverju misseri, tvö námskeið í senn
- Námstíminn er 19 kennslumánuðir á 21 mánaðar tímabili
- Kennsla hefst í ágúst og stendur fram til mánaðamóta maí/júní
- Kennsla fer að langmestu leyti fram á íslensku
- Executive MBA-námið svarar til 90 ECTS-eininga háskólanáms á meistarastigi og er hægt að sækja um lán fyrir skólagjöldum hjá LÍN
- Námið er samansett af 17 námskeiðum
![Executive MBA-útskriftarnemar í Hátíðarsal, Aðalbyggingu Háskóla Íslands](/sites/test7.hi.is/files/styles/squared_small/public/images/2020-03/utskrift.jpg?h=3fa9d8f0&itok=MimCx5va 479w, /sites/test7.hi.is/files/styles/squared_medium/public/images/2020-03/utskrift.jpg?h=3fa9d8f0&itok=_dfFP3OB 480w, /sites/test7.hi.is/files/styles/squared_large/public/images/2020-03/utskrift.jpg?h=3fa9d8f0&itok=qGQ2KtXh 768w)