Umsókn um Executive MBA-nám

Umsóknarfrestur

Executive MBA-námið er opið til umsóknar öllum þeim sem hafa lokið háskólaprófi og hafa að minnsta kosti þriggja ára starfs-/stjórnunarreynslu.  Námið fer fram á íslensku. Opnað verður fyrir umsóknir um miðjan febrúar 2023. 

Við hvetjum umsækjendur til að sækja snemma um til að auka líkur á plássi. Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða teknar til greina ef pláss leyfir.

  • Námsárið 2023 hefst fimmtudaginn 17. ágúst 2023.

 

Sækja um

Til að sækja um Executive MBA-nám við Háskóla Íslands þurfa umsækjendur að stofna aðgang á samskiptagátt Háskóla Íslands. Þar geta nemendur sett inn fylgigögn með umsókninni sem nánar er lýst hér að neðan. Athugið að umsagnir skal senda á netfangið mba@hi.is.

Mikilvægt er að skila inn eftirfarandi gögnum

Umsækjendur þurfa að skila inn tveimur umsögnum ásamt umsókn sinni.

Umsagnaraðilar þurfa að senda umsagnir sjálfir inn með tölvupósti og skal senda þær á netfangið mba@hi.is.

Afar mikilvægt er að umsækjendur skrifi stutta greinargerð um:

  • áhuga sinn á Executive MBA-náminu
  • markmiðið með því að fara í námið
  • viljann til að ljúka náminu

Þessi greinargerð er höfð til viðmiðunar þegar nemendur eru valdir inn í námið.

Með umsókninni þarf að fylgja prófskírteini. 

  • Þeir sem hafa lokið námi frá Háskóla Íslands þurfa ekki að skila slíku inn með umsókn sinni

 

Með umsókninni þarf einnig að fylgja uppfærð starfsferilskrá ásamt mynd.