Aðstaða til náms
Kennslustofa HT-101
Háskóli Íslands býður MBA nemendum upp á frábæra aðstöðu fyrir kennslu, hópavinnu og til samveru nemenda. Kennt verður í HT-101 en stofan er sérstaklega hönnuð til kennslu í MBA námi, með fyrsta flokks tölvu-, skjá-, og hljóðkerfi.
MBA-rými
MBA nemar eru með sér rými til samveru í Gimli (G-207) með kaffiaðstöðu, setustofu og vel útbúnu fundarherbergi.
Kjarval
Allir nemendur í MBA-námi við Háskóla Íslands eru með aðgang að Vinnustofu Kjarvals frá klukkan 16:00 á virkum dögum og frá klukkan 11:00 um helgar. Þar geta nemendur bókað fundarherbergi og notað opnu aðstöðuna til þess að læra og vinna hópaverkefni eða til félagsstarfs.
Verslun og veitingar
Á háskólasvæðinu er að finna fjölda sölustaða Hámu sem býður upp á fjölbreyttar veitingar. Veitingastaði er einnig að finna í Veröld - húsi Vigdísar og Stúdentakjallaranum. Þá býður Bóksala stúdenta upp á úrvals kaffi frá Te og Kaffi. Einnig er Vera mathöll í göngufæri og þar er að finna þar úrval veitingastaða.